top of page
Hvers konar meðferð er veitt á Sálfræðisetrinu?

Meðferðarúrræði fara fyrst og fremst eftir eðli vandamálsins. Fyrsta viðtal er ítarlegt greiningarviðtal þar sem farið er yfir þann vanda sem skjólstæðingur stendur frammi fyrir.

 

Hugræn atferlismeðferð

Hugræn atferlismeðferð er beitt við þunglyndi og kvíða, lágu sjálfsmati, reiðistjórnun, geðrofseinkennum og fyrir vefjagigt. Í nokkrum tilvikum höfum við einnig beitt hugrænni atferlismeðferð við vægum svefnvanda.

 

Áhugahvetjandi samtöl

Áhugahvetjandi samtöl koma að góðu gagni þegar þörf er fyrir breytingar sem erfitt er að yfirstíga, t.d. að hætta einhverskonar hegðun sem vinnur gegn góðri heilsu (reykingum, áfengis- og vímuefnaneyslu, fjárhættuspilum, hreyfingarleysi og slæmu mataræði) og kemur í veg fyrir að markmið og draumar rætist.

 
EMDR meðferð

EMDR meðferð er beytt við úrvinnslu áfalla og annarra erfiðra atvika sem ekki hefur náðst farsæl lausn á. Með EMDR aðferðinni er þér hjálpað að fara yfir minningarnar um áfallið (þar með talið neikvæðar hugsanir, tilfinningar og líkamleg einkenni sem þú fannst fyrir þegar þú varðst fyrir áfallinu). Markmiðið er að breyta áhrifum minningarinnar og upplifa jákvæðari hugsanir og losa um líkamlegu einkennin.

Samkenndarmiðuð meðferð CFT
(Compassion focused therapy)

CFT beinist að því að ná jafnvægi milli varnarviðbragða, verðlauna/hvata kerfisins og getunnar til að sefa sig. Meðferðin byggir á kenningum Dr. Paul Gilberts um mikilvægi samkenndar í samfélagi okkar, bæði gagnvart okkur sjálfum og öðrum og er grundvölluð á taugasálfræði, þróunarsögu manna og þekkingu á hugleiðslu sem byggir á kenningum Búdda. 

 

Meðferð

Taktu prófið:

 

Þunglyndi
Kvíði
Fælni
Áfallastreita
 
        Hollráð dagsins:

 

Gefstu ekki upp, velgengni í lífinu er langhlaup. Því betur sem við undirbúum okkur fyrir langhlaupið því minni hætta er á að við ofkeyrum okkur. Það sama á við í lífinu, því betur sem við undirbúum okkur fyrir það sem á vegi okkar verður því betur gengur okkur.

bottom of page